Hvað gerir Þrifaráð og ráðgjöf?
Við erum ráðgjafar í þrifum, verkferlum og gæðastjórnun. Við komum á staðinn, greinum hvernig þrifin eru unnin, þjálfum starfsfólkið og skilum skriflegri skýrslu með skýrum aðgerðapunktum.
Fyrir hverja er þjónustan?
Fyrir ræstingafyrirtæki og fyrir fyrirtæki sem sjá sjálf um þrifin, til dæmis hótel og gististaði, skóla og leikskóla, stofnanir og sveitarfélög, skrifstofur, húsfélög og hjúkrunarheimili.
Hvað kostar ráðgjöf í þrifum?
Brons, ein greining og þjálfun, kostar 39.000 kr á kynningarverði (fullt verð 45.000 kr). Silfur, innleiðing á 6 mánuðum, kostar 120.000 kr. Gull, gæðastýring í 12 mánuði, kostar 65–95.000 kr á mánuði eftir stærð. Öll verð eru án vsk.
Hvað ef greiningin skilar engu?
Ef greiningin sýnir ekki skýr tækifæri til úrbóta endurgreiðum við 50% af verðinu.
Hvernig sparar betri verkferill peninga?
Sparnaðurinn kemur af betri nýtingu á tíma, ekki niðurskurði. Þegar starfsfólk vinnur eftir skýrum verkferlum með réttu efnin og áhöldin fer minni tími til spillis. Reiknivélin hér að ofan sýnir hvað það getur þýtt fyrir ykkar rekstur.
Þjónustið þið allt landið?
Já, við þjónustum allt landið. Hafðu samband og við finnum tíma sem hentar.
Hverjir standa á bak við Þrifaráð?
Erla hefur starfað við ræstingar frá 2005, síðar sem ræstingarstjóri í Hörpu og á Keflavíkurflugvelli. Benjamin er umsjónarmaður fasteigna á stóru hóteli og ráðstefnumiðstöð á Skáni í Svíþjóð.
Hvernig byrja ég?
Bókaðu ókeypis 20 mínútna samtal á netinu, hringdu í 849 0025 eða sendu póst á info@thrifaradgjof.is. Engin skuldbinding.